Lífið á kleppsveginum
12.07.2005 11:26:15 / hundur

Er ekki kominn tími til að blogga

Ég var búinn að gleyma því hvernig þetta system virkaði. Núna eru rúmir 2 mánuðir síðan ég bloggaði síðast og nú verður allt sett á fullt aftur. Lítum á þetta sem sumarfrí.

Sumarið hefur verið ágætt fram að þessu nema í boltanum. Skemmtannalífið hefur gengið ágætlega með örfáum undantekningum ( uhumm);). Ryndar gekk nágrönnunum eitthvað erfiðlega að sofna um daginn og Hvítibjörn var óvenju hvítur á sunnudeginum en var samt fljótur að jafna sig.  Það mætti reyndar fara að skána veðrið en það er bara eins og það er. Árgangur 83 hélt glæsilegt árgangsmót  um daginn þar sem tekið var vel áðí og ég er víst kominn í einhverja nefnd sem á að halda næsta mót eftir 2 ár ásamt, D.O.B. og Fabio.

En núna verð ég að drífa mig á eina af hinum alræmdu hádegisæfingum.

Hilsen. Krummi


» 3 hafa sagt sína skoðun

10.05.2005 20:45:14 / hundur

Longtæmnósí

Jæja ég er svo saddur að ég get varla pikkað. Á þriðjudagsmatseðlinum var humar með piparostasósu og ís í eftirrétt. Við Sveinbjörn og dagný vorum að halda upp á það að nú styttist í próf lok og próflokafagnaðarlætin. Annars verður maður nú eitthvað lítið í þeim pakk núna, fer bara beint heim í boltann á föstudag eða laugardag.

Ég verð samt að vara ykkur sterklega við einu: EKKI ÉTA HEILANN HLEMM AF RÚGBRAUÐI MEÐ OSTI FRÁ KÖKUGERÐ SELFOSS Á EINUM DEGI, það fer mjög illa í magann. Ég var svoleiðis að drepast í maganum í gærkvöldi og í nótt, það var agalegt.

Annars var maður bara á spilakvöldi í gær heima hjá Geira. Það byrjaði helvíti vel en svo eftir að ég fékk helv magakveisuna gat ég ekki rassgat og endaði neðstur. Það er nú samt alveg skiljanlegt að maður tapi fyrir Geira og Ásu þar sem þau eru nú það óheppin með hvort annað. En jæja best að fara læra eitthvað í stærðfræðinni svo að maður geri nú ekki í buxurnar svona á loka sprettinum.

 

Ps. Ef Brynjar segir ykkur að barnið Jóhönnu Haraldsdóttur eigi að heita Einar Hrafn í höfuðið á mér þá er það lygi.

Kv. Krummi



 


» 19 hafa sagt sína skoðun

02.05.2005 22:20:58 / hundur

Slæmur í einhöfðanum í dag.

Djöfull var hryllilega kalt áðan á Klambratúninu, heimavelli okkar KS manna í RVK.  Það var svo ógeðslega kalt að ég var að drepast í einhöfðanum. Hann er reyndar orðinn góður núna enda þjáist hann nú ekki af ofálagi þessa dagana blessaður. Svo þegar æfingin var búin og ég ætlaði heim þá sátu þrír ísbirnir í bílnum með miðstöðina í botni. (Þetta var fyrir Geira).

Annars er voðalega lítið að frétta, en ég fékk morðhótun í sms-i í gær. Mér var svo sem sama, var bara sáttur að einhver skildi senda mér sms..
Annars var maður út um allt í gær og skellti sér meira að segja á kaffihús með Fabio og Geira. Svo á maður pantaðan tíma í ljós núna kl 10:30 og auðvitað rennir maður þangað á hvíta sportbílnum. Maður þyrfti bara að heita Auðbjörn og þá væri þetta alveg eins og í laginu með Bítlavinafélaginu:

Hann fer í ljós þrisvar í viku,
og mætir reglulega í líkansrækt.
Hann fer á fyllirí um helgar,
með svartakortið í vasanum.......

Ég var nú að borga vísareikninginn í dag. Hann var í þremur bindum og prentað á báðar síður. Páskadjammið tók ca. 15 bls. Ég get ekki beðið eftir að klippa vísakortið mitt í sumar þegar maður verður búinn að borg syndir vetrarins sem eru þó nokkrar skal ég segja ykkur. EN MAÐUR ER NÚ BARA UNGUR EINU SINNI..
En endilega skrifið í gestabókina svo maður viti nú hvaða fólk er að lesa þessa vitleysu.

Heyrumst Krummi


» 3 hafa sagt sína skoðun

01.05.2005 00:15:09 / hundur

Saga af gömlum mælingamanni

Heyrst hefur að gamall mælingamaður nokkur hafi farið í bæinn um daginn ásamt nokkrum félögum. Menn voru almennt vel rakir og þar á með þessi ágæti maður. Þegar hópurinn var kominn í bæinn týndust menn svona einn og einn á skemmtistöðunum. Um 5 leitið var mælingamaðurinn búinn að týna öllum. Hann ákvað því að reyna það seinasta í stöðunni sem var að pikka upp einhverja kerlingu á Döbbliners. Það gekk eftir og allt leit úr fyrir að rætast myndi úr kvöldinu. En þar sem maðurinn á heima langt í burtu og konan ekki þess leg að hann vildi vakna við hlið hennar um morguninn, ákvað hann að takana bara í bílnum sem var lagður skammt frá. Þegar að bílnum var komið kom þó upp eitt vandamál. Konan var þannig vaxin að ómögulegt var að koma henni fyrir með góðu móti í bílinn. Mælingamaðurinn var þó ekki að baki dottinn. Í aftursætinu voru gömlu mæligræjurnar og nú skildi kvensan mæld út og suður og henni komið fyrir á góðan máta. En þegar hann var að teygja sig eftir mæligræjunum hrasaði hann í aftur sætið og stein sofnaði.
Daginn eftir komu félagar hans að honum í bílnum og stugguðu við honum. Eitthvað var kallinn undrandi en náði þó að stynja upp úr sér:

Mæla út meyna vildi,
mögur eigi var.
Dýrðar drottins mildi,
dugaði mér þar.

Hefði ég lagst á hana.
Hún tekið mér á.
Brotnað hefði til bana
Böddvæserinn þá.

Kv. Krummi


» 5 hafa sagt sína skoðun

30.04.2005 22:21:52 / hundur

Sérfræðingur

Ég er náttulega algjör sérfræðingur. Ég fór í fyrsta prófið mitt í gær. Mætti 5 mín of seint og gleymdi reiknivélinni minn á eldhúsborðinu heima. Þurfti svo að standa í veseni í miðju prófi til þess að fá lánaða reiknivél frá Háskólanum. Frétti seinna að Páll Skúlason sjálfur hafi lánað mér sína vél en ég sel það samt ekki dýrara en ég keypti það..
       Hvað er samt að frétta með þetta veður á sigló. Það var 15°c á fimmtudag og á Laugardag er allt hulið snæ. Þetta auðvitað á ekki að vera hægt. Ég held við ættum að menga aðeins meira og fá smá gróðurhúsaáhrif í þetta svo það hætti nú að snjóa í Maí.
Ég fór samt rúnt í bæinn í nótt með Geira og það sást greinilega að háskólafólkið var í prófum. Það vantaði c.a. 5000 blindfulla háskólanema í bæinn. Ég hefði ekki einu sinni nennt á djammið þó mér hefði verið borgað fyrir það. En allavega ég er farinn að gera eitthvað.

Hilsen Krummi


» 66 hafa sagt sína skoðun

27.04.2005 22:34:41 / hundur

Rán, svindl og austantjaldsdama.

Halló Halló hvað er þessi útlendingur að gera hérna. Það er sem ég segi, maður hleypir þessum mönnum inn á heimili sitt og áður enn þú ert búinn að loka hurðinni er hann skriðinn uppí til litlu frænku þinnar og búinn að ræna bloggsíðunni þinni. Það er alveg ljóst að nú verður gerð vörutalning á kleppsveginum og sparibaukurinn stemmaður af.

En nóg um það.

Ég sit hérna í verkfræðihúsinu VRII og er að plata sjálfan mig. Nefnilega eftir því sem ég hangi hérna lengur þeim mun meira heldur samviska mín að ég hafi verið að læra. Sem er gott. Annars hefur þessi lærdómur farið eitthvað mis en ætli þetta reddist ekki eins og alltaf (oftast).
Reykjavíkurdeild KS var á æfingu á Miklatúni í dag. Við Steindór og Bjarki hlupum þar í hringi og ræddum málin. Sáum eina austantjaldsdömu og slatta af hundaskít. (Veit ekki af hverju ég setti þetta í sömu setningu, en hvað um það). Við vorum nú samt ekkert að ofreyna okkur í hlaupunum enda Bjarki í prófum, Steindór ný orðinn pabbi og ég einhverstaðar slæmur eins og alltaf. Við náðum þó (800-600-400,400-600-800)*2 ef það segir ykkur eitthvað.
Bráðlega er ég hins vegar að fara að spila kasínu við Geira. Geiri ætlar að leggja Ásu undir. Veit nú reyndar ekki hvort það er fengur eða ófengur en það kemur í ljós bara.

 Er samt ekki réttara að snú sér að Hydrology-unni svo maður dr….i ekki upp á bak.
 Hey do.
Krummi

 


» 4 hafa sagt sína skoðun

26.04.2005 23:48:59 / hundur

Johnny English hijacks dagnys blog site..... What a wanker!!!

How is everyone 2day? Johnny English here, seems no one updates this page so im gonna have a go.....

Maybe i´ll start with a joke.  Man walks into a bar...... ahh fuck it. Nice weather 2day, i might even move to this floating ice cube in the Atlantic. Has anyone ever been to England? The girls look like they fell out of the ugly tree and hit every branch on the way down!!! You icelandic blokes dont know how good you´ve got it. I recently took a trip back to the UK, just to catch up with the lads back home, it was a right laugh.

Spent most of the time in the pub getting lashed, and even then the birds didnt look any good. 

Trying to remember something interesting to tell ya bout on the trip but i cant think of fuck all......   Dagny just mentioned that people wont understand what im on about if i keep talking like some british twat..... nevermind.

Anyway, gonna wrap this up, If your in Kringlan, stop by and say hello, i work in gallery 17, yeah.....that shop where they charge you a 1000 kr just to look at what we are selling. Dont ask for a discount though, you wont get one. 

Pay day on friday!!!!! WOOOOO HOOOO!!!!!  Those of you not studying 4 exams come join me on a night out on the town to spend what little money you have left that the government has given you after they have taken their share to build that bloody expensive tunnel...hahahahaha. only joking, dagny will kick my ass 4 that.

Good night lads and ladies.  Johnny   ;)


» 3 hafa sagt sína skoðun

21.04.2005 18:37:46 / hundur

þunn..

Ég held að ég hafi aldrei verið jafn þunn á ævinni heldur en núna!! hólí mólí smólí sko!! Ég er búin að sofa í allan dag en ég vaknaði áðan og reyndi að fá mér eitthvað að borða, fékk mér eina brauðsneið og ældi henni svo næstum. Og núna ligg ég upp í rúmi og get ekki hreyft mig af hættu við að æla! 

Ég var að lesa bloggið hans Bjarna Kr. áðan og það var um einhverja kjöt-grillveislu og svo þessu rosalega flottu myndir af kjötinu og ég get svarið fyrir það að ég var næstum því farin inn á klósett að æla!! ÓGEÐ þynnka! :cry:

En allavegana fór ég á hresso í gærkvöldi með stelpunum mínum Gyðu og Guðrúnu. Við byrjuðum að drekka hérna heima bara og fórum svo nirðí bæ. Ég veit ekki hvað ég get sagt ykkur meira um gærkvöldið...það er ekki margt eftir í minninu! man eftir að hafa verið á barnum já ......

but anyway.....

Ég held að mamma hafi næstum því gefið pabba hjartaáfall í nótt. Hún er s.s á skóla inn á akureyri og kl hálf tólf í gærkvöldi ákveður hún að fara bara heim! bara skrópa á föstudaginn..hún saknaði pabba svo mikið :) Hún keyrir heim og er komin um 2 leytið, skríður upp í rúm til hans og fer að sofa en pabbi rumskar ekki!! Svo klukkutíma seinna vaknar pabbi, reisir sig upp og starir á mömmu. Hann hefur örugglega haldið að honum væri að dreyma og mamma alveg í hláturskassti!!

Pabbi starir á mömmu í þónokkurn  tíma og er ekki að trúa sínum augum þangað til að mamma fer að útskýra fyrir honum að hún hefði ákveðið á seinustu stundu að koma heim!

heheh ég hefði alveg viljað sjá svipinn á pabba þegar hann uppgötvaði að það lægi einhver hliðin á honum!! híhíh gaman saman!

En jæja ég ætla að fara að reyna að borða eitthvað. Mig langar í MAT en maginn minn er eitthvað að mótmæla..

Adios!

Dagný


» 70 hafa sagt sína skoðun

20.04.2005 19:08:38 / hundur

Aldrei friður

Það er aldrei friður til að gera nokkurn skapaðann hlut. Ég er að elda núna í fyrsta skiptið í rúma viku. Jæja nógum það.

Við vorum auðvitað að spila um helgina fyrir norðan. Áttum fínan dag á föstudaginn þar sem við unnum Leiftur Dalvík 4-1. Hins vegar vorum við ekki að gera gott mót á sunnudaginn móti sameinuðu stórliði Fjarðarbygðar. Reyndar spiluðum við 70 mínútur af leiknum einu færri og 10 mínútur 2 færri. Það er þó eingin afsökun og nú verður að spíta í lófana.

Annars er það að frétta að ég er búinn að ráða mig í skrifstofuvinnu í sumar þar sem menn mæta með bindi í vinnuna og ræða þjóðfélagsmál í kaffitímanum. Ég geri passlega ráð fyrir því að Héðinsfjarðargöng beri á góma og sitthvað fleira skemmtilegt. Ég get ekki beðið eftir fyrsta vinnudegi enda smellti ég mér í Kringluna í dag og keypti skyrtu og bindi (á tilboði).

Við Dagný og Tinna fórum í sund áðan og sóluðum okkur. Ég hélt að ein skutlan væri að gefa mér skuggalegt auga en þá var hún bara að líta eftir guttanum sýnum sem var eitthvað að fíflast fyrir aftan mig. Það var til þess að ég sá mér ekki fært að vera lengur í sundi og beilaði heim.

Kannski maður opni einn öl í kvöld. Sjáum til.

Krummi


» 7 hafa sagt sína skoðun

18.04.2005 22:49:49 / hundur

...................

já góða kvöldið!! Ég er örugglega slappasti bloggari í heimi! :S

 Hei ég fór í ræktina í dag með Tinnu og við skelltum okkur í einn Afró tíma. Það var sjúklega gaman, að dansa þarna eins og villimaður með bongó trommur live á staðnum og læti! ussuus ! þetta var geggggjað og maður tók alveg heavy á! Ég fer alveg pottþétt aftur í þennan tíma næsta mánudag :D

 En núna undanfarið hef ég verið mikið ein heima.. það er eitthvað rosalega mikið að gera hjá Krumma í skólanum þessa dagana! Það er samt búið að vera ágætt að hafa íbúðina fyrir mig sjálfa, þá get ég gengið um nakin.... NEeeiii djók! ;)

 En helgin var frekar róleg hjá mér. Ég fór að vísu í 20. afmæli til Kristínar Erlu á föstudaginn og var edrú!! takk takk 8) fór bara á bíl stoppaði í svona 2 tíma og fór svo og leigði spólu! Ég er hetja! Svo var bara chill á laugardaginn heima með Tinnu og Jóni vini mínum og farið snemma í bólið :)

jæja ég ætti kannski að fara að læra.. ég er búin að liggja hérna upp í sófa í einn og hálfann klukkutíma með bækurnar á maganum og er ekkert farin að líta í þær! Ég ætla að vera duglega núna!

Later Dagný Afró-snillingur!


» 8 hafa sagt sína skoðun

15.04.2005 10:56:25 / hundur

Road trip

ÆÆÆ

Nú er það svart. Við Brynjar eru að fara á sigló núna kl 12:30 á helv. ónýta KS  Fordinum. Þaðan liggur leiðin á Akureyri til að etja kappi við okkar fornu fjendur Leiftur-Dalvík.

Banka-sonur Brynjar
brunar norður urð.
Stýrið Fordinn synjar
og svífur út í skurð.

Jæja best að fara og mæta örlögum mínum.

Kv. Krummi heitinn.





» 3 hafa sagt sína skoðun

12.04.2005 13:44:54 / hundur

Veiðisaga af Stóra-Birni

Heyrst hefur að stórveiðimaður nokkur að nafni Stóri-björn hafi farið á veiðar um helgina að Andakilsá í borgarfirði. Þar ku Stóri-björn hafa beitt hverju bragðinu á fætur öðru en án árangurs. En á öðrum degi þegar skyggja tók var heldur farið að draga af Birni og var honum farið að leiðast hversu illa veiðin gekk . Þá ku Björn hafa ort:

 

 



Litla birni ég beiti nú

Brátt mun vænkast aflinn.

Kát nú verður kvensan sú

sem kennd verður við kallinn.

 

 



Litli björn var allra beittasta vopn Björns og hafði rauðann haus, húðlitaðann legg og svartann hringvafning á endanum sem umlukti tvær boldangs kúlur. Ekki hafði björn beitt leynivopninu lengi þegar bitið var á agnið. Það ku hafa verið 200 punda flikki frá Koti í Andakilshreppi. Það tók Björn um tvo tíma að landa stykkinu enda þrýstið mjög á alla kannta og ekki á færi nema allra færustu manna að koma því í höfn. Björn var nú í skýjunum yfir veiðinni og orti með bros á vör:

 

 



                                                Þó berjist þær bakka á milli

                                                 í bakkann af alefli spyrni.

                                                Þær fljóta í flekklausri hilli

                                                er flagga ég Litla Birni.

 

 



Þessi saga er sett inn fyrir Bödda Þórðar því að hann hefur svo gaman af veiðisögum.

Kv. Krummi


» 7 hafa sagt sína skoðun

11.04.2005 23:17:06 / hundur

Brotinn spaði!

HAHAHAHA

Fórum í badminton --> Gaui vann Geira --> Geiri Klikkaðist--> Braut spaðann í gúalú --> Og ég klikkaðist úr hlátri.

Það eru svona augnablik sem gefa lífinu gildi.
Ég hirti spaðann úr ruslinu og mynd af honum kemur mjög bráðlega á síðuna.

Munið svo að þið komist líka á síðuna með því að fara á www.krummi.tk
Heyrumst

Krummi.


» 0 hafa sagt sína skoðun

11.04.2005 21:37:18 / hundur

Súr helgi..

Góða kvöldið fólk! Vá það eru alveg 90 manns búnir að skoða síðuna í dag!! úfff

Jæja helgin var frekar súr hjá mér. Ég píndi mig alveg á djammið á föstudaginn, var að sálast í hausnum um kvöldið en ég skellti í mig bara einni íbúfen töflu og hellti svo í mig bjór stuttu seinna, þetta gerði ég allt fyrir hana Gunnu mína! Það sem ég geri ekki fyrir þessa elsku ;) 

Við fórum á Hresso og hlustuðum á Gotta og Víðir spila, svaka stuð þar, allt morandi í siglfirðingum!! Svo þegar líða fór á kvöldið týni ég henni Gunnu og enda með að hringja pissfull í Krumma og biðja hann um að sækja mig þar sem ég var auralaus og allslaus :(  en Krummi elskan kom og sótti mig og ég hikstaði alla leiðina heim híhíh :D Fór hikstandi ein upp í rúm og settist með tölvuna mína í fanginu og gerði mér þá grein fyrir því hvað ég var suddalega drukkin!! eins gott að ég fór ekki að blogga  það hefði verið meiri steypan!

Svo daginn eftir varð ég svo fárveik að ég svaf allann laugardaginn og eiginlega allann sunnudaginn líka hhmmmm... frábært ! En Tinna typpalingur kom reyndar til mín á sunnudags-kvöldið og horfðum við á The others saman og krummalíusinn líka :)

Já eins og þið sjáið var þetta svakalega afreksmikil helgi á Kleppsveginum!! bara sofið og drukkið!

En ég er að spá í að fara að bora í nefið fyrir framan tívíið....

Dagný.


» 3 hafa sagt sína skoðun

10.04.2005 20:44:21 / hundur

Afmæli hjá Sigga Hlö. jr.

Það var afmæli í dag hja Gubb kvikindinu. Hann var alveg í essinu sínu og tók löggu tak á Guðbrandi litla frænda sínum og handjárnaði svo Systu.. Kökurnar voru samt alveg að gera góða hluti og sekkurinn skellti í sig einum 18 sneiðum. Svo fór ég og droppaði guttanum(D.O.B) í flug á sigló en hann grenjaði svo sárt greyið að ég var alveg miður mín að þurfa að senda hann frá mér.. En ég var nú búinn að fara með hann í bíó, mc.donalds og í kringluna þannig að ég stóð mig alveg í stikkinu.
Annars var maður frekar slappur um helgina, skellti mér á fuglaflensu á föstudag en er að hrista hana af mér núna, þökk sé réttri meðferð (Kók,Tóbak,mc.donalds. og paratabs).

Hey mynd af Sigga. : http://www.sksiglo.is/Myndir-05/April-2005/Johann%20Orn%20Gudbrandsson.JPG

Pís át.

Krummi


» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2